Stórar ákvarðanir teknar á lokasprettinum
„Kennsla hefst í tónlistarskólanum 3. febrúar. Efri hæðin er komin mjög langt en skólinn verður einnig að hluta til niðri,“ segir Óli Þór Magnússon, verkfræðingur, sem fer með byggingarstjórn og eftirlit í Hljómahöllinni.
Hann bætir við að ýmislegt sé lagað, breytt og bætt á lokaspretti svona stórs verkefnis. Ólík sérþekking margra hafi þau áhrif að horft sé á verkið út frá ýmsum vinklum og mikill metnaður í fólki.
Víkurfréttir kíktu við í Hljómahöllinni fyrir helgi og hittu þar m.a. fyrir Óla Þór, ásamt Tómasi Young, framkvæmdastjóra, og Árna Sigfússon, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, sem báru saman bækur sínar. Nánar verður fjallað um það í næsta tölublaði.
Hljómahöllin að utan. Glöggir lesendur geta greint svartar píanónótur á klæðningu hallarinnar.