Stofnfundur Blúsfélags Suðurnesja í kvöld
Í kvöld, laugardaginn, 21. Nóvember, verður haldinn stofn-fundur Blúsfélags Suðurnesja í Top of the Rock á Ásbrú. Hefst fundurinn kl. 20:30. Fundarstjóri verður Hjálmar Árnason.
Eftir fundinn mun blúsbandið Lame Dudes stíga á svið og blúsa af alkunnri snilld. Allir blúsáhugamenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í starfi félagsins frá upphafi!
Einnig er auglýst eftir framboðum í eftirfarandi embætti: Formennsku, ritara, gjaldkera og varastjórnanda.
Framboðum og tillögum má skila inn á [email protected] eða á fundinum sjálfum. Þá vantar fólk í tónlistarnefnd félagsins. En þeirri nefnd er ætlað að vera tengiliður milli blúslistamanna og staðarhaldara á Suðurnesjum.
Einnig er auglýst eftir tónlistarfólki í húsband félagsins, en aðilar hafa lýst yfir áhuga á að stofna blúsband á Suðurnesjum.
Það verður frítt á fundinn og frítt á tónleikana á eftir.