Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Stofnaði vefsíðu með barnaefni
Sunnudagur 1. desember 2013 kl. 09:00

Stofnaði vefsíðu með barnaefni

„Foreldrar þekkja það flestir hversu erfitt er að finna íslenska, skemmtilega afþreyingu fyrir börn á Netinu. Það á ekki síst við nú þegar jólin nálgast, skólafríin byrja og börnin fara að vera meira heima við,“ segir Jana María Guðmundsdóttir, annar af aðstandendum vefsíðunnar Barnaefni.is, sem fer í loftið í dag. „Við þekktum þetta af eigin raun og sáum að við höfðu allt sem við þyrftum á að halda til þess að búa til vefsvæði á Netinu sem væri tileinkað börnum og hugsað út frá þeirra þörfum.“  

Afsprengi frumkvöðlastarfsemi
Jana María segir að Barnaefni.is sé að hluta til afsprengi frumkvöðlastarfumhverfisins á Íslandi, en hluti aðstandendanna lenti í úrvalshópi Gulleggs Innovit árið 2013 og voru valdir í 10 teyma hóp Startup Reykjavik til þess að þróa viðskiptahugmynd sína áfram. Þess megi einnig geta að á næstu vikum verður sýndur á Stöð 2 sjónvarpsþáttur í umsjá Lóu Pindar Aldísardóttur þar sem fylgst er með ferlinu sem hópurinn fór í gegnum hjá Startup Reykjavik.
 
Faðir hennar rak Fíakaup
Jana María er fædd og uppalin í Keflavík, fyrir utan fjögurra ára í Danmörku þar sem faðir hennar, Guðmundur Sveinsson, nam smíðar. Hann byggði æskuhús þeirra við Heiðarból og rak um tíma verslunina Fíkakaup í Njarðvík. „Ég naut þess vel að fá að hjálpa þar til við að setja í poka og raða í hillur og svoleiðis,“ segir Jana María hlæjandi. Hún tekur fram að henni þyki mjög vænt um heimslóðirnar og komi oft þangað til að heimsækja foreldra sína, ömmu og afa, fyrrum vinnufélaga í Leifsstöð og æskuvinkonu sína Helgu. „Ég á mjög góðar minningar tengdar þessu svæði og þykir afar vænt um það,“ segir Jana María. 
 
Mörtu að þakka
Jana María hefur vakið athygli fyrir söng sinn og leik svo að það liggur beinast við að spyrja hana hvaðan sú baktería kom. „Það er Mörtu Eiríks að miklu leyti að þakka. Hún kenndi leiklistarnámskeið sem ég fór á í 4. bekk í Myllubakkaskóla. Þá var ég algjör mús en Marta dró fram í mér kraftinn.“ Að loknu grunnskólanámi kláraði Jana María framhaldsskólanám í FS, þar sem áfangi í tjáningu var skylda og bætti við sig Leiklist I og II, sem Marta kenndi einnig. „Þá hvatti hún mig til þess að koma á leiklistarnámskeið sem hún var með í Púlsinum og þá var ekki aftur snúið. Ég fór að kenna hjá henni eftir það.“
 
Um aðventuna verður á Barnaefni.is boðið upp á frumsamda ævintýrið Tröllalandið þar sem börnin fá að sjá og heyra framhaldsþætti um tröll sem aldrei hafa heyrt um jólin en ákveða að halda gleði- og gjafadag. Einnig verða þar viðtöl við krakka um þá sjálfa og það sem þeim finnst skemmtilegt að gera. Svo verður í boði frumsamin tónlist, alls kyns skemmti- og fræðsluefni og margt fleira. Þegar er í vinnslu mikið af öðru efni fyrir síðuna, en þar má nefna ýmsa þætti, bæði skemmtun og fræðslu, s.s. matreiðsluþætti í umsjón barna og ýmislegt fleira. Dæmi um efni má finna hér og hér.
 
Mynd: í einkaeigu Jönu Maríu. 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

VF/Olga Björt ([email protected])