Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Stephen Lárus með leiðsögn í Listasafninu
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrv. forseti Íslands, virðir fyrir sér sýningu Listasafns Reykjanesbæjar. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fimmtudagur 27. mars 2014 kl. 10:06

Stephen Lárus með leiðsögn í Listasafninu

Laugardaginn 29. mars kl. 14.00 tekur Stephen Lárus Stephen, annar tveggja Stefána sem nú sýna í Listasafni Reykjanesbæjar, á móti gestum og fjallar um verk sín á sýningunni MANNLEGAR VÍDDIR. Leiðsögnin fer fram á ensku.

Stefánarnir báðir hafa sérhæft sig í gerð mannamynda. Báðir eiga þeir erlenda feður og hafa sótt listmenntun sína til annarra landa, Stephen Lárus til Bretlands og Stefán til Noregs og Ítalíu. Að öðru leyti eru þeir afar ólíkir.

Stephen Lárus hefur getið sér gott orð fyrir portrettmyndir af ýmsum „opinberum“ Íslendingum. Málverk hans af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi alþingismanni og forseta Alþingis, vakti nokkuð umtal þegar það var vígt fyrir tveimur árum; þetta málverk er að finna á sýningunni. Yfirlýst markmið Stephens er að koma á framfæri viðmóti fyrirsæta sinna, án þess að ganga of nærri einkalífi þeirra. Þarna er um að ræða jafnvægislist þar sem listmálarinn þarf að taka tillit til margra þátta, sjálfsvirðingar þeirra sem sitja fyrir, þjóðfélagsstöðu þeirra, og ekki síst þess hlutverks sem portrettmyndirnar eiga að gegna. Meðan á vinnuferlinu stendur er listmálarinn í stöðugu „viðræðusambandi“ við margar þekktustu mannamyndir listasögunnar; þær eru honum allt í senn áskorun, viðmið og hugmyndabanki. Hér gefst gullið tækifæri til að sjá saman komin mörg helstu portrett Stephens Lárusar hin síðari ár, en mörg þeirra hafa hvergi verið til sýnis opinberlega.

Á sýningunni er einnig að finna formyndir listamannanna að nokkrum sýndum verkum, allt frá frumdrögum til nákvæmra lokaútlistana. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.

Sýningin var opnuð þann 15. mars og stendur til 27. apríl 2014.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024