HSS
HSS

Mannlíf

Stemmning á stóra sviðinu tvö kvöld í röð
Miðvikudagur 31. ágúst 2011 kl. 13:57

Stemmning á stóra sviðinu tvö kvöld í röð

Óhætt er að lofa góðri stemmningu á stóra sviðinu bæði  föstudags- og laugardagskvöld á Ljósanótt.  Fjöldi flottra tónlistarmanna mun halda okkur glæsilega tónlistarveislu, bæði gestir og heimamenn,  og enginn vafi á, að tónlistarbærinn mun standa undir nafni.

Þeir sem fram koma á föstudeginum eru Lifun, Hellvar, Who Knew, Of Monsters and Men og Blaz Roca  og á laugardeginum verða Friðrik Dór, Magnús og Jóhann, Baggalútur, Helgi Björns og reiðmenn vindanna og síðast en ekki síst hljómsveitin Valdimar sem mun ljúka kvöldinu eftir glæsilega flugeldasýningu.

Ókeypis kjötsúpa

Það er víðar en á Dalvík sem gestum er boðið í súpu! Fyrirtækið Skólamatur hefur í mörg ár boðið gestum Ljósanætur í heita kjötsúpu á tónleikunum við stóra sviðið á föstudagskvöldinu.  Súpan er að sjálfsögðu ókeypis og mun ylja gestum í kvöldhúminu.  

Bílakjarninn
Bílakjarninn