Stefnt á heimsmet í notalegheitum í Eldey
Það verður áfram notalegt í Eldey frumkvöðlasetri á Ásbrú og opið hús í kvöld kl. 20:00 eins og á öllum fimmtudögum í nóvember.
Boðið verður upp á pop-up markað fjölda hönnuða af svæðinu en einnig taka þátt Maris hönnunarklasi Suðurnesja og hönnunarbúðin Kommisary verður opin. Þá verða vinnustofur hönnuða og frumkvöðla opnar og boðið verður upp á léttar veitingar.
Tónlistarmaðurinn Davíð Þór Sveinsson verður á staðnum með gítarinn og notalega tónlist.
Krabbameinsfélag Suðurnesja selur miða í happdrætti en dregið verður úr veglegum vinningum lokakvöldið. Meðal vinninga má nefna hótelgistingu, leikhúsmiða, heilsuvörur og snyrtingu. Þá geta gestir sett nafn sitt í lukkupott en í vinning er hönnun úr húsinu.
Jólamyndatakan hjá Ozzo studio sló í gegn á síðasta kvöldi, keppt er um skemmtilegustu myndina.
Dagskrá Fimmtudagur 20. nóvember
· Lifandi tónlist
· Maris, hönnunarklasi Suðurnesja
· Kommisarý hönnunarbúð
· Pop-up markaður hönnuða
· Opnar vinnustofur og smiðjur:
· Flugvirkjabúðir Keilis
· Spiral design
· Mýr design
· Agnes design
· Raven design
· Ozzo ljósmyndun
· Geosilica
· Ljósberinn
· Flingur design
· Hakkit – stafræn smiðja fyrir eldhuga
· Geosilica kynnir nýjar kísilvörur
· Skapaðu skemmtilega jólamynd hjá Ozzo ljósmyndun – opin vinnustofa
Opið 20:00 – 22:00.
Eldey frumkvöðlasetur, Grænásbraut 506, 235 Ásbrú