Starfsfólk Tjarnarsels tilnefnt til verðlauna
- Orðsporið afhent í gær.
Kennarar og sérkennslustjóri Tjarnarsels voru tilnefndir til verðlaunanna Orðsporsins. Árdís H. Jónsdóttir, sérkennslustjóri, er jafnframt höfundur bókarinnar Orðaspjalls.
Verkefnið Okkar mál – samstarf um menningu, mál og læsi í Fellahverfi hlaut viðurkenninguna í ár. Það hefur það að meginmarkmiði að auka samstarf skóla í Fellahverfi og stofnana í Breiðholti með það að leiðarljósi að efla félagslegan jöfnuð, námsárangur og vellíðan barna í hverfinu.
Orðsporið er viðurkenning Mennta- og Menningamálaráðuneytisins til þeirra sem þótt hafa skarað fram úr og unnið ötullega í þágu leikskóla og/eða leikskólabarna. Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, afhenti viðurkenninguna í Hannesarholti í gær.
Félagar í Félagi leikskólakennara og Félagi stjórnenda leikskóla sendu inn tilnefningar og hægt var t.d. að tilnefna einstakan leikskólakennara, kennarahóp, verkefni, leikskóla, leikskólastjóra, foreldrasamstarf, sérkennslu, sveitarfélag eða annað sem vel hefur verið gert og er til fyrirmyndar varðandi leikskólastarf.
Árdís H. Jónsdóttir, fyrir miðju, þegar bók hennar var gefin út í apríl í fyrra.
Vinningshafarnir í ár, aðstandendur Okkar máls, við afhendinguna í gær.