HSS
HSS

Mannlíf

Starfsfólk Landsbanka í góðum gír
Þriðjudagur 5. apríl 2005 kl. 19:09

Starfsfólk Landsbanka í góðum gír

Starfsfólk Landsbankans Keflavík, Gömlu flugstöð og Sandgerði gerði sér glaðan dag um síðustu helgi.

Eftir fund í orlofs- og fræðslumiðstöð bankans í Þrastaskógi þar sem unnið var við stefnumótun og ýmis markaðsmál, var haldið í fjallaferð á trukkum af öflugustu gerð. Leiðin lá upp á Ingólfsfjall í björtu og fallegu veðri og þrátt fyrir að sumum hafi ekki staðið á sama í erfiðustu brekkunum skemmtu sér allir vel.
Á bakaleiðinni var ekið um fjöruna við Ölfusárósa og þaðan í Selvík, en þar beið veitingamaðurinn í Þrastalundi með kræsingar.

Að málsverð loknum var svo haldið heim á leið með rútu frá SBK og létu ferðalangar það ótalið þó hún væri ekki 6 hjóla trukkur á 44” dekkjum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn