Bygg
Bygg

Mannlíf

Starfsfólk Bláa lónsins gerði sér glaðan dag
Mánudagur 30. apríl 2012 kl. 15:47

Starfsfólk Bláa lónsins gerði sér glaðan dag

Bláa Lónið fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og í tilefni þess bauð fyrirtækið öllu starfsfólki ásamt mökum, um 250 manns, í ævintýraferð á Suðurland.
Fjölbreytt afþreying var í boði og upplifðu starfsmenn m.a. jöklagöngu og ísklifur á Sólheimajökli, jeppaferð og göngu í Þórsmörk, menningar- og sögutengda gönguferð um Njáluslóðir og heimsókn á Þorvaldseyri auk gljúfragöngu þar sem þátttakendur tókust á við Bleiksársgljúfur og Bleiksá í Fljótshlíð.

Suðurlandið varð m.a. fyrir valinu þar sem það svæði varð hvað verst úti í eldgosinu árið 2010 og var það því einkar áhugavert að heimsækja svæðið og sjá áhrif gossins á landslag og náttúru.

Ferðir og skipulagning var í höndum hótel Fljótshlíðar og South Iceland Adventure og tókst öll skipulagning og framkvæmd frábærlega. Starfsfólk Bláa Lónsins er sammála um að það að sækja Ísland heim er einstök upplifun og hvetur önnur fyrirtæki og einstaklinga til að njóta alls þess sem Ísland hefur upp á að bjóða.

Sjá fleiri myndir hér!

Bílakjarninn
Bílakjarninn