Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Starfið hjá Karlakór Keflavíkur
Miðvikudagur 28. nóvember 2012 kl. 18:19

Starfið hjá Karlakór Keflavíkur

Karlakór Keflavíkur er nú að ljúka sínu 59. starfsári. Á árinu bar margt til tíðinda hjá kórnum.
Kórinn hélt sitt árlega nýliðakvöld í október þar sem nýjum og væntanlegum kórfélögum er boðið til sviðaveislu. Þá hélt kórinn jólatónleika í samvinnu við Grundartangakórinn, bæði í Ytri- Njarðvíkurkirkju og Vinaminni á Akranesi. Þá heimsótti kórinn dvalarheimili aldraðra á Suðurnesjum fyrir jólin; Garðvang, Hlévang og Víðihlíð.

Eftir áramót söng kórinn nokkrum sinnum í Bláa lóninu með rokkaranum Eyþóri Inga. Kórinn var einn fimm kóra sem valinn var til þátttöku í 100 ára afmælistónleika Karlakórsins Þrasta í Hörpunni vorið 2011. Kórinn söng með Lögreglukórnum í Stapanum þegar þeir kvöddu sameiginlegan stjórnanda kóranna, Guðlaug Viktorsson, og kórinn hélt sína árlegu vortónleika í Stapanum og í Grindavíkurkirkju. Þá söng kórinn við sjómannamessu á “Sjóaranum síkáta” og við hátíðarhöld á sjómannadeginum í Grindavík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Kórinn söng einnig við allmargar jarðarfarir eins og undanfarin ár.

Stjórnendaskipti
Á árinu kvaddi stjórnandi kórsins Guðlaugur Viktorsson kórinn. Guðlaugur hafði stjórnað kórnum í átta ár, en heldur nú erlendis til framhaldsnáms.

Nýr stjórnandi kórsins er Helga Bryndís Magnúsdóttir. Hún tók við kórnum síðla sumars 2012. Bjóðum við hana velkomna til starfa.

Helga Bryndís hóf tónlistarnám í Vestmannaeyjum hjá Guðmundi H. Guðjónssyni. Hún fór síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík og naut þar handleiðslu Jónasar Ingimundarsonar. Hún útskrifaðist árið 1987 sem píanókennari og einleikari. Helga Bryndís stundaði framhaldsnám í Vínarborg og Helsinki. Hún starfaði sem organisti og kórstjóri við Möðruvallakirkju í Hörgárdal og við kirkjurnar þar í kring og einnig í kirkjunum í Svarfaðardal og var stjórnandi Samkórs Svarfdæla.  Hún starfaði einnig við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar. Helga Bryndís hefur einnig verið virk sem píanóleikari, í kammertónlist, með söngvurum og í CAPUT hópnum. Hún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Helga Bryndís starfar nú auk kennslu sem organisti við Grindavíkurkirkju og stjórnandi Karlakórs Keflavíkur.

Framundan hjá kórnum
Starf Karlakórs Keflavíkur hefur um margra ára skeið staðið á föstum grunni. Kórinn æfir frá því um miðjan september til apríl eða maí og fer það svolítið eftir verkefnum. Kórinn heldur árlega vortónleika og kemur fram við ýmis tilefni þess utan. Samstarf við aðra kóra og Samband íslenskra karlakóra er samofið starfinu og mikilvægur þáttur í að stofna til nýrra kynna og halda tengslum við aðra karlakóra víðsvegar af landinu. Karlakórinn ferðast á hverju ári með vortónleika sína, oftast er það innanlands en einnig hefur kórinn ferðast til annarra landa.

Jólatónleikar
Í vetur mun kórinn ásamt Barnakór Holtaskóla og Sigríði Aðaltsteins messósópran halda hina árlegu Kertatónleika, jólatónleika sína í Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 29. nóvember kl. 20:30.
Kórinn mun einnig taka þátt í Jólatónleikum kóra á Suðurnesjum sem fram fara í Stapanum fimmtudaginn 6. desember. Á þeim tónleikum taka þátt Kvennakór Suðurnesja, Kirkjukór Keflavíkurkirkju, Söngsveit Suðurnesja, Söngsveitin Víkingarnir auk Karlakórs Keflavíkur. Þar munu kórarnir syngja nokkur lög hver í sínu lagi og sameinast í einn stóran kór að lokum. Stjórnandi tónleikanna er Arnór Vilbergsson organisti Keflavíkurkirkju.

Kórinn 60 ára 2013
Mikið verður um að vera á afmælisári karlakórsins.

Kórinn mun halda sína árlegu árshátíð í janúar og vortónleika í maí næstkomandi.

Pétursborg í Rússlandi
Þá stefnir kórinn á heimsókn til Pétursborgar í Rússlandi í byrjun júní 2013 þar sem kórinn mun halda tónleika, bæði einir og með kór Átthagafélags Strandamanna. Auk þess mun kórinn fara í skoðunarferðir í þessari stórkostlegu borg.

Haustið 2013 verður svo mikið um dýrðir áður en afmælisárinu lýkur.

2014
Í lokin er rétt að geta þess að kórinn mun sjá um “Kötlumót”, þ.e. kóramót Sambands íslenskra karlakóra sem fram mun fara 2015. Þá geta Suðurnesjamenn vænst heimsóknar allt að 600 kórfélaga víðsvegar að af landinu. Kórarnir munu halda tónleika hver í sínu lagi og að lokum sameinast í einum stórum 600 manna kór.

Nýir kórfélagar velkomnir
Karlakór Keflavíkur hefur áhuga á því að stækka kórinn og bæta við mönnum í allar raddir. Allir sem hafa áhuga eru hvattir til að koma á æfingu í Karlakórshúsið að Vesturbraut 17 eða hafa samband við:

Vilhjálmur Ingvarsson S: 664-0392

Guðjón Kristjánsson: 899-2739

Páll Hilmarsson: 699-6869

Æfingatímar eru á fimmtudagskvöldum klukkan 19:30.