Starfaði sem dagforeldri í 41 ár
Ólöf Marteinsdóttir lét af störfum sem dagforeldri í Reykjanesbæ 5. júní síðastliðin eftir að hafa starfað samfleytt við daggæslu ungra barna frá árinu 1979 eða í 41 ár.
Víst er að margir íbúar á öllum aldri eiga hlýjar og góðar minningar frá dvölinni hjá Ólu eins og hún er oftast kölluð.
Í tilefni þessara tímamóta heimsóttu bæjarstjóri, sviðstjóri fræðslusviðs og leikskólafulltrúi Ólöfu og færðu henni blóm ásamt þökkum fyrir gott og farsælt starf í þágu barna í sveitarfélaginu.
Að vanda var fullt af yngstu íbúum bæjarins hjá Ólu eins og meðfylgjandi myndir af vef Reykjanesbæjar sýna.