Stafgöngunámskeið í Garði
Á laugardagsmorguninn 20. janúar kl. 10:30 verður frí leiðsögn í stafagöngu í Garði. Mæting er við Íþróttamiðstöðina. Ásdís Sigurðardóttir íþróttakennari og stafagönguþjálfari fer yfir grunvallaratriðin í stafagöngu og leiðir hópinn í stafagöngu um bæinn. Á heimasíðu bæjarins eru bæjarbúar hvattir til að nýta sér þetta tækifæri enda er stafaganga talin afar heilsusamleg.