Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Stærstu viðburðir á Ljósanótt 2005
Fimmtudagur 1. september 2005 kl. 10:35

Stærstu viðburðir á Ljósanótt 2005

Fjölbreyttar sýningar og tónleikar alla dagana m.a. í Duushúsum og víðar um bæinn.

Fimmtudagur
Setning Ljósanætur og fjölmenningarhátíð við Myllubakkaskóla, Védís Hervör syngur Ljósalagið 2004.
Bítlabærinn Keflavik í Nýja bíó.
Blues í Stapanum  - Stefán og Eyfi á Ránni - klassík í Ytri Njarðvíkurkirkju.

Föstudagur 
Listasafnið opnar sýningu á verk-um Eiríks Smith ásamt fleirum. Sóprantónleikar í Duushúsum.  KK og Maggi Eiríks í Sparisjóðnum.
Rokktónleikar unga fólksins í Frumleikhúsinu.
Blues í Stapanum.

Laugardagur - Ljósanótt
Rúmlega 50 myndlistarsýningar víðs vegar á Hafnargötunni, götuleikhús og tónleikar.  Tækjasýning og lifandi bær. Leiktæki fyrir börnin, flottir fornbílar og mótorhjól, stjörnusporið o.fl.

Laugardagskvöld - Ljósanótt
Tónlist á útisviði, Ljósalags-keppnin, lýsing Bergsins og flugeldasýning.

Sunnudagur
Flestar listsýningar opnar, tónleikar í Duushúsum og samkirkjuleg gleðistund í Kirkjulundi.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024