Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Stærðfræði er líka skemmtileg
Miðvikudagur 13. maí 2015 kl. 08:48

Stærðfræði er líka skemmtileg

Í leikskólanum Garðaseli í Reykjanesbæ hefur í vetur verið lögð áhersla á að auka og efla stærðfræðikennslu í umhverfi barnanna með kjörorðinu Stærðfræði er líka skemmtileg. Að sögn Ingibjargar Bryndísar leikskólafulltrúa á fræðsluskrifstofu hafa kennarar og starfsfólk lagt áherslu á nokkra lykilþætti:

1. Mikilvægi þess að tala jákvætt um stærðfræði   

2. Lagt áherslu á að allir geti lært stærðfræði    

3. Finna tækifæri til að flétta stærðfræði í daglegt lífi barnsins og nota ýmsar aðferðir til að leysa stærðfræðiþrautir s.s. vasareikna, talnagrindur, mælikönnur og fleira.  
 
Í Garðaseli eins og í öðrum leikskólum Reykjanesbæjar hefur einnig verið notað stærðfræðinámsefnið  Numicon sem er hannað með það í huga að nýta þrjá megin styrkleika barna:  
- Lærdóm í gegnum leik
- Eftirtekt
-Tilfinningu fyrir mynstrum.  
 
Börnin á Garðaseli búa yfir færni í stærðfræði og hafa gaman af því að leysa þrautir og leika sér með tölur.   
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024