Bygg
Bygg

Mannlíf

Sprell og gaman á Öskudegi
Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl. 08:44

Sprell og gaman á Öskudegi


Í dag er Öskudagur og má vænta þess að hinar ýmsu kynjaverur verði á kreiki í fyrirtækjum á Suðurnesjum með söng og sprell í skiptum fyrir góðgæti.
Öskudagsskemmtun verður svo í boði eftir hádegi í öllum sveitarfélögunum.

Í Stóru-Vogaskóla verður skemmtun á lóð skólans og hefst hún kl. 15. Þar verður kötturinn sleginn úr tunnunni. Að því loknu verður Öskudagsball í skólanum kl. 15:30.
Boðið verður uppá andlitsmálningu í félagsmiðstöðinni frá kl 13:30- 14:30.

Í Grindavík verður Öskudagsball í Þrumunni fyrir 1. - 4. bekk mill kl. 16:30 og 18 og fyrir  5. - 7. bekk milli kl. 18 og 20. Stigin verður dans, farið í leiki og kötturinn sleginn úr tunnunni.

Í Sandgerði verður Félagsmiðstöðin Skýjaborg með dagkrá fyrir alla krakka í Íþróttahúsinu kl. 13:00. Þar verður kötturin sleginn úr tunnunni og sitthvað fleira.

Í Reykjanesbæ verður hefðbundin dagskrá í Reykjaneshöllinni frá kl. 14 – 16 fyrir börn í 1.- 6. Bekk. Boðið verður upp á hoppukastala, farið í leiki og kötturinn sleginn úr tunnunni.
--

Bílakjarninn
Bílakjarninn

VFmynd/elg.