Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

SpKef afhendir námsstyrki
Þriðjudagur 20. júní 2006 kl. 21:37

SpKef afhendir námsstyrki

Árlegum námsstyrkjum í Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins í Keflavík hefur verið úthlutað. Eftirtaldir námsmenn fengu styrk að upphæð kr. 150.000 í ár:

Berglind Aðalsteinsdóttir sem útskrifast sem kandídat í læknisfræði frá Háskóla Íslands, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir en hún útskrifast með MA í Umhverfisheimspeki frá Lancaster University, og Jana María Guðmundsdóttir sem lauk burtfararprófi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík.

Dómnefndin sem sá um valið á styrkþegum er skipuð eftirtöldum aðilum:
Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði, formaður dómnefndar
Árni Hinrik Hjartarson, fjármálastjóri Reykjanesbæjar
Eysteinn Jónsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra.

Sparisjóðurinn í Keflavík hefur stutt dyggilega við bakið á námsfólki frá Suðurnesjum með ýmsum hætti í gegnum tíðina og eru styrkveitingarnar hluti af Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins.

Hjá Sparisjóðnum stendur námsmönnum til boða margvísleg fjármálaþjónusta og ber þar hæst yfirdráttur vegna námslána. Auk þeirra lána má nefna hagstæð lán til námsmanna vegna tölvukaupa eða ferðalaga og bókastyrki sem úthlutaðir eru til 25 námsmanna í byrjun hverrar skólaannar.

Sparisjóðurinn í Keflavík hefur ætíð styrkt íþrótta- og menningarstarf á starfssvæði sínu og eru námsstyrkirnir mikilvægur hluti af því starfi. Námsstyrkir hafa nú verið veittir sextán ár í röð og hafa samtals 60 námsmenn fengið styrki.

VF-mynd/Þorgils: Frá vinstri: Baldur Guðmundsson, markaðsstjóri SPKEF, Arnar f.h. Berglindar Aðalsteinsdóttur, Jana María Guðmundsdóttir, Marta f.h. Guðbjargar R. Jóhannesdóttur  og Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024