Spiladós ömmu í uppáhaldi
Ástdís Pálsdóttir, sálfræðinemi og söngfugl úr Borgarnesi er búsett í Reykjanesbæ og kemst í jólaskapið þegar hún horfir á kvikmyndina Notting Hill. Sem ung stúlka svaf hún með jólaplötu Jóhönnu Guðrúnar í fanginu og vakti fram eftir við að hlusta á hana. Það er hennar eftirminnilegasta jólagjöf.
Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið?
Notting Hill, þótt það sé ekki jólabíómynd þannig lagað. En það var uppáhalds bíómyndin hennar ömmu og við horfðum alltaf á hana saman á jólunum.
Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir?
Ég treysti ennþá á mömmu og pabba að óska öllum nær og fjær gleðilegra jóla fyrir mig, þau senda alltaf út jólakort.
Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar?
Ég fer alltaf í kirkju á aðfangadagskvöld
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Geisladiskurinn Jól með Jóhönnu Guðrúnu. Ég svaf með hann í fanginu og var vakandi fram eftir öllu til að klára að hlusta á hann einu sinni áður en ég færi að sofa.
Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum?
Ég man mest eftir því þegar við héldum jólin fyrir norðan hjá ömmu. Amma er mikið fyrir jólin og var dugleg að troða mér í alls konar jólasveinabúninga og fannst það voða sætt, mér fannst það ekki.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Hangikjöt og uppstúfur, við höfum líka alltaf kartöflumús að hætti Óla frænda með. Það er besta blandan.
Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Þau eru næstum komin þegar að tengdamamma byrjar að baka jólasortirnar, annars eftir síðasta prófið í jólaprófatíðinni.
Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin?
Ég bjó í tvö ár í Noregi með mömmu og pabba, það var voðalega huggulegt. Við hlustuðum á messuna í útvarpinu og héldum í okkar íslenska sið. Get ekki hugsað mér að vera erlendis í dag á jólunum.
Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn?
Ég varð frekar vonsvikin þegar ég fann bréf sem ég skrifaði jólasveininum uppi á skáp í eldhúsinu um mitt sumar þegar ég var 8 ára. Ég manaði mig svo upp í að segja mömmu og pabba frá því að ég vissi þetta á meðan við vorum í sundi. Þá kallaði ég þetta upp og stakk mér svo í kaf og reyndi að koma ekki upp aftur fyrr en þau væru farin í heita pottinn.
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
Já, það er kirkjan hennar ömmu. Hún er með ljósi og spiladós og er í algjöru uppáhaldi hjá mér.
Hvernig verð þú jóladegi?
Ég vil helst ekki fara úr náttfötunum á jóladegi. Ég er yfirleitt að lesa bók og hafa það notalegt. Við fjölskyldan förum samt yfirleitt alltaf í göngutúr eða í bíltúr á jóladag. Ég ætla reyndar að spila Jibber Jabber með fjölskyldunni á jóladag í ár, bara til þess að geta gert grín að pabba.