Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Spegill fortíðar – silfur framtíðar
Þriðjudagur 26. janúar 2010 kl. 13:08

Spegill fortíðar – silfur framtíðar

Er yfirskrift fyrirlestra sem íslenska vitafélagið stendur fyrir í Sjóminjasafni Reykjavíkur –Víkinni. Fimmtudagskvöldið 4. febrúar verður fjórða fyrirlestrakvöld vetrarins þar sem tveimur merkum stöðum gerð skil í máli og myndum. Agnes Stefánsdóttir segir frá fornminjum á Reykjanesi og frá Reykjanesvita og safnvörðurinn Finnbogi Bernódusson mætir í fornum sjóklæðum og ræðir um Ósvör. Umfærður og kaffi.

Menningararfurinn til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar

Reykjanesviti – á Valahnjúk á Reykjanesi var 1. desember 1878 tekinn í notkun fyrsti viti landsins. Agnes Stefánsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins ræðir um vitann og fornminjar á Reykjanesi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ósvör – ein elsta verstöð Íslands og eitt helsta aðdráttarafl Bolungarvíkur. Finnbogi Bernódusson, safnvörður í Ósvör segir frá þessari gömlu verbúð sem m.a. geymir salthús, fiskihjalla, sexæring, dráttarspil, fiskireit og útihjalla sem gefa staðnum blæ liðinna tíma.

Hvernig getum við nýtt söguna og menningararfinn til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar? Eigum við ónýttan arf við strendur landsins sem auðvelt og fyrirhafnarlítið er nýta til nýsköpunar og atvinuuppbyggingar?

Staður og stund:
Sjóminjasafnið Víkin
Grandagarði, 101 Reykjavík
Fimmtudaginn 4. febgrúar klukkan 20:00