Mánudagur 22. september 2003 kl. 15:45
Söngvari Iron Maiden nærri því að slá brautarmetið á Gokart-brautinni

Á dögunum ætlaði Bruce Dickinson, söngvari Iron Maiden og flugstjóri hjá Iceland Express, í sjóstangaveiði með erlendum fréttamönnum sem voru að taka við hann viðtal eins og við greindum frá í síðustu viku. En þar sem slæmt veður var þann dag ákváðu þeir að gera gott úr deginum og skelltu sér í gokart hjá Reisbílum í Reykjanesbæ, það er skemmst frá því að segja að Bruce var aðeins rétt rúmri einni sekúndu frá því að slá brautarmetið sem er mjög gott hjá manni sem ekki hefur ekið brautina áður. Reyndar sagði hann það eftir aksturinn að hann hafi keppt í gokart á sínum yngri árum.