Söngur og gleði í samvinnu við Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum
Dagana 10. til 20. júlí næstkomandi stendur undirrituð fyrir söngnámskeiði undir yfirskriftinni Söngur og gleði í samvinnu við Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum. Námskeiðið er haldið í húsakynnum Tónlistarskóla Reykjanesbæjar við Þórustíg, með góðfúslegu leyfi. Námskeiðið uppistendur af 6 hóptímum, þar sem farið er í Röddina í líkamanum, að finna sína eigin rödd og æfa og liðka, kennt er og talað er um kórsöng og farið í sviðsframkomu. Einnig er boðið upp á einkatíma með undirleik fyrir þá sem vilja, þar sem fundin er raddgerð og hæfileiki hverrar raddar fyrir sig, hvað hentar hverri rödd best að syngja og hvernig má áfram vinna að styrk hennar auk þess sem farið er í sönglög, aríur eða annað efni eftir því sem hentar. Námskeiðið er aðallega ætlað byrjendum og þeim sem langar að kynnast röddinni en hentar einnig þeim sem sungið hafa lengi og vilja kynnast röddinni af meiri alvöru eða fá handleiðslu um raddgerð!
Ferilskrá:
Undirrituð lærði söng við Nýja Tónlistarskólann hjá Alinu Dubik, við London College of Music hjá Eileen Price, og hjá einkakennurum í Köln þeim, Sieglinde Schneider, Liu Montoyu-Palmen og Philip Doghan. Hún hefur einnig sótt tíma hjá Elínu Ósk Óskarsdóttur, Signýju Sæmundsdóttur og nýverið hjá Gail Sullivan, sem kemur fram við Metropolitan Óperuna. Undirrituð lauk VIII. stigs prófi í píanóleik við London College of Music hjá Susan Thomas, en hefur einnig lært hjá Hönnu Guðjónsdóttir, Rögnvaldi Sigurjónssyni og Svönu Víkingsdóttur.
Undirrituð hefur komið fram á fjölda tónleikum og sýningum sem einsöngvari, píanóleikari og kórstjóri og stofnaði Gospelkór Suðurnesja. Hún kom nú nýverið fram með þýskum Hrynlistahóp í Salnum í Kópavogi þar sem hún spilaði Klassísk píanóverk 21. júní síðastliðinn og framundan er að hún taki þátt í Gospelhátíð í Regensburg í Þýskalandi sem raddþjálfari í byrjun september, en hún bjó í borginni um 3ja ára skeið og stýrði kórunum Spirit of Joy og Femmes Fatales þar við góðar undirtektir. Undirrituð er fastráðinn sem píanó- og forskólakennari við Tónlistarskólann í Reykjanesbæ.
Þeir sem vilja skrá sig á námskeiðið hringi í síma 663 7563.
Elín Halldórsdóttir.