Bygg
Bygg

Mannlíf

Söngsveitin Víkingar keppir í undanúrslitum Kóra Íslands
Laugardagur 4. nóvember 2017 kl. 11:57

Söngsveitin Víkingar keppir í undanúrslitum Kóra Íslands

Vox Felix komið í úrslit Kórar Íslands

Ungmennakórinn Vox Felix komst áfram í þættinum Kórar Íslands sem sýndur er á Stöð 2 um síðustu helgi, en kórinn flutti lag Bonnie Tyler „Total Eclypse of the Heart“ sem á íslenskri þýðingu heitir „Mundu mig“. Þar með er kórinn kominn í sjálfan úrslitaþáttinn sem fram fer þann 12. nóvember næstkomandi.
 
Söngsveitin Víkingar kemur fram á morgun, sunnudag eða þann 5. nóvember, í undanúrslitum og ef þeir komast áfram þá eru þeir komnir í úrslitaþáttinn ásamt Vox Felix.
 
„Við komumst áfram í úrslit þökk sé ykkur öllum sem kusuð,“ segir í færslu Vox Felix á Facebook þar sem kórinn þakkar fyrir sig.
 
Það verður spennandi að fylgjast með Víkingunum næsta sunnudag en þá kemur í ljós hvort Suðurnesjaslagur muni eiga sér stað í úrslitaþættinum.
 
Það verður án efa einnig spennandi að fylgjast með óveðurslægðinni berja á Atlantic Studios annað kvöld því á sama tíma og Kórar Íslands verða í beinni útsendingu frá Atlantic Studios á Ásbrú mun stormur eða rok berja á myndverinu.


 
 
Bílakjarninn
Bílakjarninn