Söngstund í Álfagerði á föstudagkvöldið
Söngstund verður í félagssaðstöðu eldri borgara í Álfagerði í Vogum föstudagskvöldið 16. janúar kl. 20:00. Þá munu tónlistarhóparnir Uppsigling og Dísurnar kíkja í heimsókn og taka lagið. Söngfélagið Uppsigling hefur sérhæft sig í að flytja íslensk sönglög og mun á föstudagskvöldið leggja sérstaka áherslu á lög við ljóð Davíðs Stefánssonar. Söngtríóið Dísurnar er vel þekkt í Vogunum og mun á föstudaginn m.a. flytja lög meðlima tríósins við ljóð Davíðs Stefánssonar.
Boðið verður upp á kaffi á þessu notarlega söngkvöldi. Eldri borgarar og áhugafólk um tónlist er hvatt til að mæta í Álfagerði á föstudagskvöldið og njóta góðrar kvöldstundar.