Söngleikurinn „Litla Hryllingsbúðin“ í Frumleikhúsinu
Nú í ár eru liðin 20 ár síðan Frumleikhúsið var formlega opnað eftir að húsnæðinu á Vesturbraut 17 var breytt úr tveggja hæða skemmtistað í fullkomið leikhús á aðeins níu mánuðum. Það hafði tekið all mörg ár að finna Leikfélagi Keflavíkur húsnæði undir starfsemi þess, æfingar, leikmuni, leikmyndir og sýningar og fleira. Þetta voru því tímamót í sögu félagsins og því ber að fagna með afmælishátíð.
Föstudaginn 24. febrúar næstkomandi verður söngleikurinn „Litla Hryllingsbúðin“ frumsýndur en það má með sanni segja að leikfélagið sé að ráðast í eitt stærsta verkefnið hingað til. Leikstjóri sýningarinnar er landsþekktur leikstjóri og leikari, Þorsteinn Backmann, en þetta er í annað sinn sem hann stýrir verki hjá félaginu, áður setti hann upp „Gaukshreiðrið“ sem var ákaflega flott sýning og hlaut mikið lof gagnrýnenda.
Söngstjóri sýningarinnar er Súluverðlaunahafinn og kórstjórinn Arnór Vilbergsson, Jón Bjarni Ísaksson er höfundur plöntunnar sem leikur stórt hlutverk í sýningunni og sviðshönnun er í höndum formanns félagsins, Davíðs Óskarssonar, en þess má geta að í fyrsta sinn í sögu Frumleikhússins er notast við snúningssvið.
Valinn maður er í hverju hlutverki enda afar krefjandi leik- og sönghlutverk í þessari mögnuðu sýningu. Þá er ótalið allt það fólk sem vinnur ómetanlegt starf á bakvið tjöldin.
Um leið og við þökkum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem stutt hafa við bakið á félaginu er það von okkar sem stöndum að sýningunni að sem flestir mæti og sjái hvað félagið er öflugt og styrki þannig um leið það frábæra starf sem unnið er í Frumleikhúsinu- leikhúsi okkar Suðurnesjamanna, segir í tilkynningu frá Leikfélagi Keflavíkur.