HSS
HSS

Mannlíf

Söngelskir FS-ingar komnir af stað
Mánudagur 23. janúar 2006 kl. 10:28

Söngelskir FS-ingar komnir af stað

Kór Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum hóf vorönnina af krafti þegar æfingar hófust sl. fimmtudag. Um 30 manns mættu og sungu af lífs og sálar kröftum og var mikil stemmning á svæðinu. Nú er um að gera að slást í hópinn en einnig verður skráð í kórinn næsta fimmtudag. Á þessari önn verða æfingar í stoðtíma á fimmtudögum en þeir sem taka þátt fá eina einingu fyrir. Kórstjóri er Elín Halldórsdóttir.

Af vef Fjölbrautaskólans
Bílakjarninn
Bílakjarninn