Sólseturshátíð um helgina

Í ár fagnar Garður 100 ára afmæli og verður hátíðin sérstaklega vönduð með frábærum skemmtiatriðum og tónlist.
Hátíðin fer fram á Garðskaga og hefst á morgun. Ekki er skipulögð dagskrá á hátíðarsvæðinu sjálfu þann dag en tónelikar verðar í Samkomuhúsinu þar sem hljómsveitirnar Hjaltalín og Songbird spila. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Sama kvöld er heimaleikur Víðis og ÍH á Víðisvelli og Golfklúbbur Suðurnesja heldur Miðnæturgolf- Sunset Festival Open, á Hólmsvelli í Leiru. Listsýningar verða opnar víða um bæinn.
Hátíðin hefst svo fyrir alvöru á laugardag en boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá alla helgina og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Á laugardagsmorgninum flýgur Landhelgisgæslan yfir svæðið og kl.11.00 hefst dagskrá fyrir börnin. Björn Thoroddsen flugkappi sýnir listflug og kl.13.00 setur bæjarstjórinn, Oddný Harðardóttir, hátíðina ásamt því að íbúa nr. 1500 verður fagnað. Þá tekur við dagskrá á sviði þar sem koma fram meðal annarra: Örn Árnason, Björn Thoroddsen og Jón Rafnsson sem kalla sig BíóTríó, Gunni og Felix, Haffi Haff, Vignir Bergmann, Bryndís Jakobs, G+, Soul Brothers, Songbird, Söngsveitin Víkingar og Félag harmonikuleikara.
Veitingahúsið Flösin verður opið svo og Byggðasafnið sem býður uppá lifandi safn. Sölubásar verða á svæðinu og Gallerí Garðskagi en þar er selt handverk eftir íbúa Garðs. Spákona verður á staðnum. Ýmislegt verður í boði fyrir börnin, andlitsmálun, föndur og hoppukastalar verða á svæðinu og Knattspyrnufélagið Víðir verður með leiki og þrautir fyrir börn og unglinga. Bílalest verður fyrir yngstu börnin og risa rennibraut verður opin fyrir eldri börnin eða þá sem þora. Fornbílar verða til sýnis og Vélhjólaklúbburinn Ernir lætur sjá sig. Brunavarnir Suðurnesja sýna búnað sinn og sjá um brennuna sem kveikt verður í við dagskrárlok á laugardeginum. Menningartengd söguganga verður á laugardeginum. Á sunnudaginn bjóða síðan Garðbúar gestum í bröns á hátíðarsvæðinu.
Garðbúar eru hvattir til að skreyta hús sín, garða og bíla í tilefni hátíðarinnar og grilla saman með fjölskyldu, vinum eða nágrönnum á föstudeginum milli kl. 17 og 19.
Hátíðardagskránni lýkur svo með brennu um kvöldið þar sem allir koma saman í sannri sólsetursstemmningu.