HSS
HSS

Mannlíf

  • Sól slær silfri á Voga
  • Sól slær silfri á Voga
Þriðjudagur 11. ágúst 2015 kl. 16:39

Sól slær silfri á Voga

- Fjölskyldudagar í Vogum 13. til 16. ágúst

Fjölskyldudagar Sveitarfélagsins Voga verða haldnir hátíðlegir frá 13. til 16. ágúst. Fjölbreytt dagskrá er í boði alla dagana fyrir alla fjölskylduna. Fjölskyldudagar eru kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur og vini til að eiga góðar samverustundir, segir í dagskrá hátíðarinnar.

Dagskráin hefst fimmtudaginn 13. ágúst en þá er frítt í golf fyrir alla fjölskylduna í boði Golfklúbbs Vatnsleysustrandar frá kl. 09-15. Síðdegis verða svo Hverfaleikar Þróttar í golfi.

Á föstudaginn verður boðið upp á grillaðar pylsur og gos við félagsmiðstöðina kl. 18. Þá verður leikur milli Þróttar Vogum og Skínanda í 4. deildinni í knattspyrnu. Síðar um kvöldið verður svo varðeldur í fjörunni neðan við Stóru Voga þar sem Brekkusöngvari Íslands, Ingó Veðurguð, leiðir sönginn. Verði veður óhagstætt flyst viðburðurinn í Aragerði.

Laugardaginn 15. ágúst verða hverfaleikar Þróttar í þríþraut, listsýningar, Strandarhlaup Þróttar, Kassabílarallý, Hverfaleikar í Boccia, handverksmarkaður og hópakstur fornbíla.

Milli kl. 14 og 17 verður danskrá á hátíðarsvæði í Aragerði. Þar verður fjölbreytt dagskrá og veitingar í boði. Boðið verður upp á dans, brúðubíl, söng- og hæfileikakeppni, sápubolta, fjársjóðsleit og karamelluflug.

Í kvölddagskrá sem hefst kl. 20 verður hverfaganga, tónlistarveisla þar sem Agla Bríet úr Ísland got talent, Jónsi, Guðrún Gunnars, Eyjólfur Kristjáns og Bubbi Morthens koma fram. Þá verður flugeldasýning sem björgunarsveitin Skyggnir annast.

Dagskrá fjölskyldudaga í Vogum lýkur svo á sunnudeginum með listsýningum, opnu húsi í Kálfatjarnarkirkju þar sem boðið verður upp á grillaðar pylsur, fjölskyldudorgveiði, skemmtisiglingu, afmæliskaffi hjá Lions, sögugöngu og tónleikum í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla.

Nánar má kynna sér dagskrá og tímasetningar á vef Sveitarfélagsins Voga.

Bílakjarninn
Bílakjarninn