Sól og Svali á sumarhátíð
Krakkarnir á Gimli og foreldrar þeirra voru í sumarskapi sl. föstudag þegar hin árlega sumarhátíð skólans var haldin hátíðlega. Pylsurnar runnu ljúflega niður í mannskapinn en stelpurnar í foreldrarfélaginu voru ansi dulegar við að grilla. Fóstrurnar héldu uppi stuðinu í sandkassanum með hljóðfæraleik og söng. Silja Dögg Gunnarsdóttir, ljósmyndari VF festi fjörið á filmu á föstudaginn.