Soho Grillvinafélagið eru Grillmeistarar Íslands 2015
– Skellum 11.000 like á það!
Soho Grillvinafélagið úr Keflavík bar sigur úr býtum í keppninni Grillsumarið Mikla. Liðið hlýtur þar með titilinn Grillmeistarar Íslands 2015 og fá liðsmenn ferð til Búdapest með Heimsferðum að launum. Þetta kemur fram á vef Innnes, sem stóð fyrir keppninni.
Keppnin um Grillmeistara Íslands hefur staðið yfir í allt sumar en sjö lið skipuð þremur til fimm ástríðugrillurum öttu kappi um titilinn Grillmeistarar Íslands 2015. Liðin fengu úrvals hráefni til að elda úr og áttu að grilla tvo rétti á 60 mínútum. Sjónvarpsþættir um hvert lið voru sýndir á mbl.is og Youtube og vöktu mikla athygli.
Það lið sem fékk síðan flest „like“ á Facebook vikuna 13. til 20. ágúst fór með sigur af hólmi. Soho Grillvinafélagið fékk 11 þúsund „like“ en liðið í öðru sæti, Gaman að grilla, 6 þúsund.
Meðlimir Soho Grillvinafélagsins eru fimm ungir menn búsettir í Keflavík sem hafa sérstakan áhuga á grillmat og bjór og eru einstaklega gestrisnir. Í keppninni buðu þeir upp á dýrindis máltíð. Fordrykkurinn var ferskur sumardrykkur úr ananas og myntu, aðalrétturinn samanstóð af grilluðu nauta-ribeye og grillaðri tígrisrækju ásamt kartöflum og grænmeti og í eftirrétt buðu þeir upp á grillaða ávexti með súkkulaði ívafi.
Sjónvarpsþættina sjálfa má finna á heimasíðu Grillsumarsins Mikla, www.grillsumaridmikla.is.
Grillsumarið Mikla hefur undanfarin ár framleitt matreiðsluþætti sem sýndir hafa verið í sjónvarpi. Í sumar var ákveðið að breyta út af vananum og standa fyrir óhefðbundnum grillþáttum sem sýndir voru á mbl.is. Keppnin gekk framar vonum og vakti mikla athygli. Keppendur sýndu frumlegheit við eldamennskuna og buðu uppá girnilega og heldur óvenjulega grillrétti.
Liðin fóru einnig ólíkar og óhefðbundnar leiðir við atkvæðasöfnun. Örfáir keppendur kvörtuðu yfir því að einhver lið í keppninni hafi sótt í veitur á netinu og keypt sér „like“. Ljóst var frá upphafi að hvert lið hafði sjö daga til að safna atkvæðum og það lið sem myndi safna flestum atkvæðum færi með sigur af hólmi. Engar skorður voru settar á hvar liðin gætu sótt atkvæði. Eftir að hafa skoðað málið frá öllum hliðum er niðurstaðan sú að engar reglur voru brotnar. Reglurnar verða þó endurskoðaðar fyrir næsta ár.
Grillsumarið Mikla er í eigu matvöruheildverslunarinnar Innnes.