Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Sögustund með bæjarstjóra
Föstudagur 4. apríl 2008 kl. 16:13

Sögustund með bæjarstjóra

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar heimsótti í vikunni börnin á leikskólanum Tjarnarseli og las fyrir þau söguna af Gullbrá og birnunum þremur.  Tilefniðvar alþjóðlegur dagur barnabókarinnar og hafði ýmsum góðum gestum verið boðið í leikskólann til þess að lesa fyrir börnin.

Eiríkur Hermannsson framkvæmdastjóri fræðslusviðs Reykjanesbæjar las Sögur af Suðurnesjum eftir Jóhannes úr Kötlum sem börnunum þótti nokkuð sorgleg en að auki lásu Kolbrún Sveinsdóttir starfsmaður á bókasafninu og Ingibjörg Hilmarsdóttir sérkennslufulltrúi leikskóla fyrir tvo yngstu árgangana.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Bæjarstjórinn vakti mikla athygli, sér í lagi brúðurnar sem hann hafði með sér, en hann bauð börnunum að leika hlutverk sögupersónanna samhliða lestrinum.

Leikskólinn Tjarnarsel býður árlega elstu nemendum sínum upp á lestrar- og skriftarnámskeið sem er lokahnykkurinn á lestrarnámi þeirra á leikskólagöngunni. Þeir nemendur heimsóttu Dagdvöl eldri borgara og lásu fyrir fólkið sem þar dvelur.

Myndir:
Árni Sigfússon bæjarstjóri les söguna um Gullbrá og birnina þrjá og býður krökkunum að leika með.
Eiríkur Hermannsson las sögur af Suðurnesjum og hélt góðri athygli þótt textinn væri kannski í þyngra lagi. Sumum þótti sagan frekar sorgleg.