Sögulegar persónur á sviðinu

Akademiet for Historiske Frisurer var stofnað þann 5. janúar af Ludvig Brand Möller, sem hafði fengið hugmyndina frá Þýskalandi. Félagið er það fyrsta sinna tegundar á Norðurlöndum og hafa félagsmenn hafa sýnt sögulegar greiðslur í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Hárgreiðslumeistararnir starfa í Danmörku og er sýningin haldin hér á landi í samvinnu við Hárgreiðslumeistarafélag Íslands.
Þess má geta að einn hárgreiðslumeistaranna í hópnum er Ásta Karlsdóttir Lauritsen frá Grindavík, en hún býr nú og starfar í Danmörku. Ásta gerði greiðslu sem ber nafnið Marie Antoinette, La belle Poule. Eins og nafnið ber með sér er hugmyndin að greiðslunni komin frá Marie Antoinette, eiginkonu Lúðvíks Frakklandskonungs, en þau voru bæði líflátin í frönsku byltingunni árið 1789.
Sýningin var haldin með aðstoð Grindavíkurbæjar, Sparisjóðsins í Grindavík, Hitaveitu Suðurnesja og fleiri aðila. Anna María Reynisdóttir, hárgreiðslumeistari í Grindavík sá um að útvega fyrirsætur fyrir sýninguna.