Söfnuðu fyrir Rauða krossinn með tombólu
Þrír ungir krakkar héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands. Lára Katrín Halldórudóttir, Arna Sóley Sigurðardóttir og Guðmundur Agnar Júlíusson söfnuðu alls 2.149 kr. og rann ágóðinn óskertur til Rauða krossins. Þá söfnuðu þær Lilja Skarphéðinsdóttir og Elín Rós Bjarnadóttir 2.879 kr. en þær voru með tombólu fyrir utan Nettó og rann ágóðinn einnig óskertur til Rauða krossins.
Mynd efst (fv.): Lára Katrín Halldórudóttir, Guðmundur Agnar Júlíusson og Arna Sóley Sigurðardóttir.
Lilja Skarphéðinsdóttir og Elín rós Bjarnadóttir söfnuðu 2.879kr.