Soffía Sæmundsdóttir sýnir í Saltfisksetrinu í Grindavík
Í tilefni af 30 ára afmæli Grindavíkurbæjar opnar Soffía Sæmundsdóttir einkasýningu á verkum sínum í sýningarsal Saltfiskseturs Íslands Hafnargötu 12a laugardaginn 17. apríl nk. klukkan 15:00. Þar sýnir hún málverk og eru flest verkin unnin á þessu ári en heiti sýningarinnar er " Himinn, jörð, flæði...". Soffía hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis m.a. sem fulltrúi Íslands. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín m.a. nýverið virt bandarísk listverðlaun kennd við listmálarann Joan Mitchell og eru veitt af samnefndri stofnun í New York fyrir framúrskarandi árangur í málun. Sýningin stendur til 2. maí og er opin alla daga frá klukkan 11-18.