Snappið orðið eins og raunveruleikasjónvarp
Video: Steinunn Ósk er ein af vinsælustu snöppurum landsins
Hin 24 ára gamla Steinunn Ósk Valsdóttir er orðin hálfgerð Snapchat stjarna þar sem um 4000 manns fylgjast með henni á degi hverjum. Þar má fylgjast með henni í daglega lífinu með tvíburastrákunum sínum eða að farða sig fyrir framan spegilinn heima.
Keflvíkingurinn Steinunn byrjaði eins og flestir að nota sitt persónulega Snapchat fyrir vini og kunningja en eftir að hún fór að starfa hjá vinkonu sinni sem rekur snyrtistofuna- og verslunina Deisymakeup, þá fóru þær að hugsa um leiðir til þess að vekja athygli á sér og vörunum sínum. „Ásdís byrjaði á Snapchat að sýna farðanir og vörur og við sáum fljótt hvað það fékk góð viðbrögð. Ég ákvað að byrja að gera það sama og tengja það við bloggið mitt, en Snapchatið fór að verða mun vinsælla en bloggið þar sem margir eru of óþolinmóðir til að bíða eftir nýrri bloggfærslu og vilja sjá allt strax. Ef maður nýtir þessa tvo miðla saman, setur inn bloggfærslu og segir svo frá henni á Snapchat eru miklu meiri líkur á að fólk lesi bloggið,“ segir Steinunn sem er með eigin bloggsíðu, steinunnosk.com en bloggar meira þessa dagana á mamie.is sem er mömmu- og lífstílsblogg nokkurra ungra kvenna.
Fær um 30 spurningar á dag
Snapchat Steinunnar hefur aldrei verið vinsælla en einmitt núna og eru um fjögur þúsund manns sem fylgjast með myndböndunum hennar. Þar sýnir Steinunn aðallega frá því þegar hún er að farða, kynnir nýjar förðunarvörur og fatnað, en einnig frá daglegu lífi sínu sem tvíburamamma. „Það er oftast frekar tilvijanakennt hvað ég set inn á Snapchat, þetta er bara eitthvað sem mér dettur í hug hverju sinni. Ég er oft með sýnikennslu í förðun, stundum er ég á djamminu með vinkonum mínum, aðra daga sýni ég aðeins frá fjölskyldulífinu.“
Steinunn fær að eigin sögn rosalega mikil viðbrögð frá fylgjendum sínum á Snapchat og fær um 30 spurningar á dag í gegnum forritið þar sem fólk er að spyrja um hitt og þetta. „Þetta eru að mestu leyti stelpur á mínum aldri en svo hef ég heyrt um kærasta stelpna sem langar kannski í eitthvað af þeim vörum sem ég er að sýna. Það leiðinlegasta við Snapchat er að þetta er frekar ópersónulegur miðill frá minni hlið, ég sé bara nöfn þeirra sem eru að fylgjast með mér og senda mér skilaboð en engar myndir.“
Skiptir mjög miklu máli að vera heiðarleg
Er fólk að þekkja þig út í bæ sem fylgist með þér á Snapchat? „Já það kemur alveg fyrir. Ég fór til dæmis út að skemmta mér í Reykjavík um helgina og var í smá sjokki að finna fyrir því að einhverjir þekktu mig út frá Snapchatinu. Það er mjög gott að nota miðilinn til að kynna mig en ég er sjálf er að taka að mér farðanir og selja förðunarvörur og því er gott að geta nýtt sér Snapchat til að koma sér á framfæri og auglýsa. Einnig fæ ég sendar til mín vörur til að prófa eða fæ afslátt af vörum. Um daginn var ég í fataverslun þar sem ég tók myndbönd af mér að máta jakka sem mér fannst flottur og langaði í. Daginn eftir var jakkinn uppseldur og fékk ég þá góðan afslátt af vörum í versluninni. Ég er samt mjög hörð á því að mæla bara með vörum sem ég fíla virkilega sjálf. Sum fyrirtæki halda að maður taki við hvaða vörum sem er og auglýsi þær á snappinu en það virkar alls ekki þannig. Það skiptir mig mjög miklu máli að vera heiðarleg og ég myndi aldrei lýsa vöru á jákvæðan hátt ef ég væri ekki ánægð með hana sjálf,“ segir Steinunn.
Farin að segja bara „fokk it“
Eins og gefur að skilja fer mikill tími í að vera með símann á lofti allan daginn í öllum aðstæðum „Það fer alveg svakalegur tími í þetta og stundum skammast ég mín fyrir hversu miklum tíma ég eyði í símanum. En svo lít ég á þetta þannig að síminn minn og Snapchatið séu hluti af vinnunni minni. Suma daga kúpla ég mig út, maður þarf alveg á því að halda líka.
Snapchatmiðillinn er í raun mjög steikt fyrirbæri, þetta er eins og raunveruleikasjónvarp. Mér hefði aldrei dottið það í hug þegar ég byrjaði með Snapchat að þetta myndi enda með þessu. En mér finnst þetta mjög skemmtilegt og það hefur verið þroskandi að þurfa að díla við alls konar hluti sem tengjast þessu, eins og að spá í hvað öðrum finnst um mann. Ég er farin að segja bara „fokk it“, þetta er bara ég að sinna því sem mér finnst skemmtilegt. Ef fólk nennir ekki að horfa á mig þá er auðveldlega hægt að eyða mér út. Það er alveg pottþétt fólk að fylgjast með mér sem þolir mig ekki, en það verður bara að hafa það, mér er alveg sama.
Ég reyni auðvitað að vera ég sjálf og er alls ekki að reyna vera öðruvísi en ég er, en ég hugsa að maður setji sjálfan sig ómeðvitað í einhvern smá karakter.“