Mannlíf

  • Smíðuðu kassabíla og gröfu fyrir leikskólabörnin
    Glæsilegur hópur af nemendum FS og Tjarnarsels.
  • Smíðuðu kassabíla og gröfu fyrir leikskólabörnin
    Krakkarnir fóru strax í að prufakeyra nýju græjurnar.
Miðvikudagur 4. maí 2016 kl. 09:56

Smíðuðu kassabíla og gröfu fyrir leikskólabörnin

FS-ingar komu færandi hendi á Tjarnarsel

Nemendur úr Smíðasmiðjunni í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, ásamt kennara sínum honum Gunnari Valdimarssyni, komu færandi hendi í leikskólann Tjarnarsel nú fyrir skömmu. Þar afhentu nemendur fjóra kassabíla, tvö hlaupahjól og eina sandkassagröfu sem þeir höfðu sjálfir smíðað. Var þeim tekið fagnandi af börnum og kennurum sem voru afar þakklát fyrir þessar góðu gjafir sem voru þegar teknar í notkun.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024