Bygg
Bygg

Mannlíf

Skreytum saman í Bryggjuhúsi
Fimmtudagur 29. nóvember 2018 kl. 09:20

Skreytum saman í Bryggjuhúsi

Jólaföndur fjölskyldunnar

Fyrir um 100 árum síðan stóð Duusverslunin fyrir jólatrésskemmtunum fyrir bæjarbúa í Bryggjuhúsi sem er elsta húsið í Duushúsalengjunni. Allt upp undir 300 börn komu þar saman og dönsuðu í kringum jólatréð og voru mörg þeirra að sjá þar jólatré í fyrsta sinn. 
 
Síðastliðin tvö ár hefur þessi saga verið rifjuð upp og haldið gamaldags jólaball í Bryggjuhúsi. Helgina áður hefur verið boðið upp á föndurstund þar sem fjölskyldur útbúa skreytingar á jólatréð og í salinn en einnig til að taka með heim. Hefur þetta verið einstaklega vel heppnuð samverustund og því verður leikurinn endurtekinn í ár.
 
Sunnudaginn 2. desember frá kl. 14 – 16 er fjölskyldum boðið að stíga út úr amstri hversdagsins og njóta þess að koma saman í Bryggjuhúsi þar sem búin verða til kramarhús, jólahjörtu og músastigar og salurinn skreyttur. Sunnudaginn 9.desember verður síðan haldið gamaldags jólaball í anda Duusverslunar og verður það nánar auglýst síðar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn