Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Skötumessan verður 17. júlí
Það hefur verið vel mætt á Skötumessu undanfarin ár.
Laugardagur 15. júní 2019 kl. 07:56

Skötumessan verður 17. júlí

Miðvikudaginn 17. júlí nk. verður Skötumessan enn og aftur haldinn í Garðinum. Borðhald hefst kl. 19.00 og að venju er boðið uppá glæsilegt hlaðborð af skötu, saltfiski, plokkfiski og meðlæti og rómuð skemmtidagskrá að venju flutt af fólki sem leggur okkur lið.

Skólamatur sér um matinn eins og áður og skemmidagskráin samanstendur af hefðbundnum atriðum. Dói og Baldvin sjá um harmonikkuleik á meðan fólkið er að koma sér fyrir og síðan rekur hver dagskrárliðurinn sig af öðrum. Geimsteinar Suðurnesja Davíð Már Guðmundsson og Óskar Ívarsson taka nokkur lög eins og Olsenbræðurnir Erlingur og Svavar Helgasynir áður en Sigríður Á Andersen fv. ráðherra frá Móakoti í Garði flytur ræðu kvöldsins. Það er von á góðu frá þeim kvenskörungi. Þá afhendum við styrkina sem við öll erum þátttakendur í og, að lokum verða stuttir tónleikar þar sem Halldór Gunnar Fjallabróðir og Sverrir Bergman stórsöngvari skemmta Skötumessugestum. Þeir félagar harðneituðu að fá greiðslu fyrir að koma fram og leggja þannig stuðning sinn við gott málefnið.

Vilt þú verða einn af þeim?
Árlega mæta rúmlega 400 manns á Skötumessuna og borða til blessunar eins og dómkirkjupresturinn orðaði það svo skemmtilega við mig. Við leggjum öll saman í þetta verkefni og erum líka öll viðstödd þegar styrkirnir eru greiddir út í lok kvöldsins. Ég spyr því þig lesandi góður. Vilt þú ekki verða einn af þeim sem leggja fötluðum og þeim sem eru hjálpar þurfi lið. Vinnufélagar og kaffifélagar víða á Suðurnesjum, nú er tækifæri til þess og við erum öll í sama liðinu og finnum hvað þetta kvöld getur skiptir miklu máli fyrir þá sem við styðjum.
Verð aðgöngumiða er 5,000- kr. Það hjálpar til að greiða aðganginn inn á reikning Skötumessunnar fyrir fram eins og okkar fólk er vant en reiknisnúmerið er; 
0142-05-70506, kt. 580711-0650.

Nú er Skötumessan í fyrsta skipti haldinn í sameiginlegu sveitarfélagi og því sérstakt tækifæri fyrir íbúa að gera Skötumessuna að sinni árlegu bæjarskemmtun, mæta vel og styðja við verkefni í heimabyggð í Suðurnesjabæ. 
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Gerðaskóla miðvikudaginn 17. júlí, mæta tímanlega og finna sér sæti og hlusta á harmonikkutóna frá Dóa og Baldvin fyrir kvöldverðinn.
Skötumessan er áhugafélag um velferð fatlaðra.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Helstu stuðningsaðilar Skötumessunnar eru; Fiskmarkaður Suðurnesja, Skólamatur ehf, Icelandair Cargo, Suðurnesjabær og fl.