Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Skötumessan 2018 haldin á morgun
Þriðjudagur 10. júlí 2018 kl. 09:39

Skötumessan 2018 haldin á morgun

Miðvikudaginn 11. júlí nk. verður Skötumessan enn og aftur haldinn í Garðinum. Borðhald hefst kl. 19.00 og að venju verður boðið uppá glæsilegt hlaðborð af skötu, saltfiski, plokkfiski og meðlæti – þá verður rómuð skemmtidagskrá flutt af fólki sem leggur Skötumessunni lið.
 
Skólamatur sér um matinn eins og áður og skemmidagskráin samanstendur af hefðbundnum atriðum: Dói og Baldvin sjá um harmonikkuleik á meðan fólkið er að koma sér fyrir og síðan rekur hver dagskrárliðurinn sig af öðrum, Andri Páll Guðmundsson söngvari, Geir Ólafsson og Þórir Baldursson taka saman ballöður og sr. Hjálmar Jónsson Dómkirkjuprestur verður ræðumaður kvöldsins. Það er von á góðu frá þeim mikla snillingi. Þá verða styrkir afhentir og að lokum verða stuttir tónleikar þar sem hljómsveitin Gullkistan og Gunnar Þórðarson skemmta gestum Skötumessunnar.
 
Vilt þú verða einn af þeim?
 
Enn eitt árið er verðstöðvun hjá Skötumessunni og verð aðgöngumiða er 4.000 kr. Það hjálpar til að greiða aðganginn inn á reikning Skötumessunnar fyrirfram eins og fólk er vant en reikningsnúmerið er: 0142-05-70506, kt. 580711-0650.
 
Árlega mæta rúmlega 400 manns á Skötumessuna og „Borða til blessunar“ eins og Dómkirkjupresturinn orðaði það svo skemmtilega. Við leggjum öll saman í þetta verkefni og erum líka öll viðstödd þegar styrkirnir eru greiddir út í lok kvöldsins. Ég spyr því þig lesandi góður. Vilt þú ekki verða einn af þeim sem leggja fötluðum og þeim sem eru hjálpar þurfi lið? Skötumessan er tækifæri til þess og við erum öll saman í verkefninu og finnum það á hjarta okkar hvert og eitt hvað þetta kvöld skiptir miklu máli fyrir þá sem við styðjum.
 
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Gerðaskóla miðvikudaginn 11. júlí og gott að mæta tímanlega og finna sér sæti og hlusta á harmonikkutóna frá Dóa og Baldvin fyrir kvöldverðinn.

Skötumessan er áhugafélag um velferð fatlaðra.
Helstu stuðningsaðilar Skötumessunnar eru: Fiskmarkaður Suðurnesja, Skólamatur ehf, Icelandair Cargo, Sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerðis og fleiri.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024