Skötumessa í Garðinum
Enn á ný er blásið til Skötumessunnar í Garði. Samkvæmt venju er Þorláksmessa að sumri 20. júlí ár hvert og hefst messan kl. 19:00 í Miðgarði Gerðaskóla og ætlum við að halda upp á þau tímamót með hressilegu skötuáti. Þá verður einnig sérstakur matseðill fyrir þá sem vilja annað góðgæti úr Garðsjónum en skötuna. Þeim stendur til boða saltfiskur, kinnar og fl. Svokallaður Barnamatseðill. En við ítrekum að allir eru velkomnir, konur og karlar.
Við ætlum sem fyrr að „Borða til góðs“ eins og vinur minn Guðjón Sigurðsson orðaði það og fáum til þess aðstoð frá eftirtöldum fyrirtækjum;
Skólamat ehf, Fiskmarkaði Suðurnesja, Saltver, H.Péturssyni fiskverkun í Garði, Víkurfréttum og væntanlega bætast fleiri í hópinn og segjum við frá því á Messunni.
Við höfum aðeins verið að efla skemmtidagskrá Skötumessunnar og nú mæta nokkrir landsþekktir skemmtikraftar til að styðja gott málefni. Meðal þeirra sem troða upp er söngsveit fatlaðra af Suðurnesjum en þau hafa þegar hafið æfingar fyrir kvöldið svo við eigum von á góðu.
Aðrir eru í góðri æfingu eins og Bjartmar, Hreimur, Árni Johnsen, Harmonikkuunnendur af Suðurnesjum, Kolfinna ung of stórefnileg söngkona úr Garði og síðast en ekki síst er Raggi Bjarna enn með kjæk í hendinni og leiðir Þorgeir Ástvaldsson með sér, þann síkáta útvarps- og tónlistarmann.
Að venju verða óvæntar uppákomur og sögur sagðar af gestum úr sal og heyrst hefur af óvæntu atriði sem kemur öllum til að hlægja.
Allur hagnaður af Skötumessunni rennur til góðgerðarmála sem fyrr. Forsala og skráning er á póstfangið [email protected] og í síma 8943900. Verð 3.000.- kr. Við hvetjum alla til að taka þátt í forsölunni.
Með vinsemd
Ásmundur Friðriksson
Bæjarstjóri Garði