Skonrokkstónleikar og lifandi sjávardýr á bryggjunni
Sjóarinn síkáti er öflugasta hátíð sinnar tegundar á landinu.
„Við erum metnaðarfull í Grindavík og erum sífellt að reyna að þróa og gera bæjarhátíðina okkar glæsilegri með hverju árinu því Grindvíkingar gera miklar kröfur. Sjóarinn síkáti verður með ýmsar nýjungar í ár. Má þar nefna Skonrokkstónleika á laugardagskvöldinu í íþróttahúsinu, fiskasafn með lifandi sjávardýrum í fiskabúrum á bryggjukantinum við hátíðarsviðið á sjómannadeginum, keppnina sterkasti Víkingur heims með 8 útlenda keppendur, körfuboltamót fyrir yngri iðkendur. Leiktæki verða nú einnig á bryggjuballinu á föstudagskvöldinu, Sjóara síkáta hlaupið og síðdegistónleikar á hátíðarsviðinu. Þá verða Vísissystkinin með minningartónleika um Palla og Möggu í Grindavíkurkirkju auk þess sem í tilefni af 50 ára afmæli Vísis er bæjarbúum og gestum Sjóarans síkáta boðið að skoða fiskvinnslur fyrirtækisins undir leiðsögn eigenda,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar. Sjóarinn síkáti verður 5.-7. júní n.k. Dagskrá Sjóarans síkáta má sjá í heild sinni á www.sjoarinnsikati.is
Nágrannar hvattir til að fjölmenna
Þetta er sjöunda árið sem Þorsteinn heldur utan um skipulagningu Sjóarans síkáta. Hann segir að vissulega hafi veðrið talsvert að segja um hvernig til tekst með hátíðarhöldin en fyrstu langtímaspárnar líta vel út. „Við höfum upplifað hin ýmsu veðrabrigði undanfarin ár. En í mínum huga snýst þetta um hvernig veðrið er innra með okkur og þá er allt hægt og allir skemmta sér vel. Þetta verður frábær helgi, við munum gleðjast með sjómönnunum okkar og gerum það með stæl alla sjómannadagshelgina með glæsilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna og við hvetjum nágranna okkar til að fjölmenna hingað og taka þátt í fjörinu með okkur í Grindavík þar sem verður rjóminn af bestu skemmtikröfum landsins. Að vanda verður Sjómanna- og vélstjórafélagið með mjög veglega dagskrá á Sjómannadeginum auk þess sem margt annað skemmtilegt verður í boði fyrir alla fjölskylduna í Grindavík. Sjóarinn síkáti er til heiðurs sjómanninum og fjölskyldu hans,“ segir Þorsteinn.
Öflugasta hátíð sinnar tegundar
Sjóarinn síkáti hefur fest sig í sessi sem öflugasta fjölskyldu- og sjómannadagshátíð landsins. Á sama tíma og hefðbundin hátíðarhöld sjómannadagsins hafa víða verið lögð niður undanfarin ár hafa Grindvíkingar tekið þá stefnu af efla Sjóarann síkáta enn frekar enda er Grindavík einn öflugasti sjávarútvegsbær landsins. Mikið er lagt upp úr því að hátíðin er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem fjölbreytnin er í fyrirrúmi en tónlistin skipar stóran sess á hátíðinni. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar koma fram á Sjóaranum síkáta að þessu sinni. Segja má að Sjóarinn síkáti sé fyrsta bæjarhátíð sumarsins á landsvísu. Aðsókn hefur verið mjög góð undanfarin ár en um 20-25 þúsund manns hafa verið í Grindavík á Sjóaranum síkáta. Hátíðin hefur verið haldin á annan áratug en fyrir sjö árum voru gerðar talsverðar breytingar á hátíðinni sem tekist hafa virkilega vel og áfram eru Grindvíkingar að þróa hana áfram.
Nóg pláss á tjaldstæðinu
„Við vildum auka þátttöku heimafólksins á sínum tíma og jafnframt fá góða gesti í bæinn þessa helgi sem er orðin að eins konar grindvísku ættarmóti með tilheyrandi gestum sem hafa verið til mikillar fyrirmyndar. Með því að fá heimafólk til að skreyta bæinn og skipta honum upp í litahverfi varð í raun algjör sprenging í þátttöku Grindvíkinga. Föstudagskvöldið hefur fest í sessi með skrúðgöngu og skemmtilegu bryggjuballi og svo er líf og fjör alla helgina með tónlist, skemmtiatriðum, listviðburðum og uppákomum þar sem við leggjum upp úr fjölbreyttri fjölskyldudagskrá alla helgina sem nær hámarki á sunnudeginum, sjálfum sjómannadeginum. Það besta við þessa bæjarhátíð okkar Grindvíkinga að mínu mati er hversu margir koma að henni og bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans,“ segir Þorsteinn. Tjaldsvæðið í Grindavík er glæsilegt og hefur aðsókn þar verið góð á Sjóaranum síkáta. Þar er nóg pláss alla helgina. Aldurstakmark er 20 ár og er næturgæsla á svæðinu þar sem unglingafyllerí er einfaldlega ekki liðið.
Dagskrána er hægt að nálgast í heild sinni á www.sjoarinnsikati.is.