Skólaslit hjá Myllubakkaskóla
Síðastliðinn föstudag fóru fram skólaslit Myllubakkaskóla. Skólaárið einkenndist af skemmtilegum viðburðum, góðum árangri nemenda í leik og starfi og síðast en ekki síst jákvæðum anda og góðri samvinnu milli nemenda, foreldra og starfsfólks Myllubakkaskóla. Á skólaslitum rifjaði Eðvarð Þór skólastjóri upp það sem hefur áunnist á árinu ásamt því að fara yfir heðfbundna viðburði.
Steinar aðstoðarskólastjóri veitti viðurkenningar en helstu viðurkenningar hlutu þau Helena Rós Gunnarsdóttir fyrir góðan námsarangur á lokaprófi úr grunnskóla og Sindri Kristinn Ólafsson sem hlaut ,,Kennaraeplið" en sú viðurkenning er veitt þeim nemanda sem að mati starfsmanna þykir hafa sýnt fyrirmyndar framkomu og jákvætt viðhorf í gegnum árin. Söng- og hljóðfæraleikur setti skemmtilegan svip á skólaslitin en nokkrar stúlkur úr 9. og 10. bekk sungu tvö lög og nemendur úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar spiluðu á hljóðfæri.
Myndir frá athöfninni má nálgast hér.