Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Skógfellsstígur skokkaður í tilefni Jarðvangsviku
Það er víða fallegt á Reykjanesi.
Fimmtudagur 9. maí 2013 kl. 13:18

Skógfellsstígur skokkaður í tilefni Jarðvangsviku

- Allir velkomnir

Í tilefni Jarðvangsviku á Reykjanesi verður Skógfellsstígur skokkaður frá afleggjaranum við Voga og til Grindavíkur, laugardaginn 11. maí kl. 10:00. Þetta er um 16 km stórskemmtileg leið yfir hraun og fjalllendi þar sem spor forfeðranna eru meitluð í klappir. Lagt af stað stundvíslega frá bílastæðunum við afleggjarann við Voga og endað í sundlauginni í Grindavík.

 Ókeypis aðgangur í laugina fyrir skokkara. Hægt að senda bakpoka á undan sér í sundlaugina frá bílastæðunum í Vogum. Skokkurum verður skutlað til baka eftir sundsprettinn.

Nánari upplýsingar og skráning í hlaupið er á netfangið [email protected].
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024