Skoðunarferð um Auðlindagarðinn í Svartsengi og Reykjanesvirkjun
Miðvikudaginn 20. júlí verður boðið uppá skoðunarferð ferð um Auðlindagarðinn í Svartsengi og Reykjanesvirkjun. Byrjað verður á akstri og fróðleik um Auðlindagarðinn í Svartsengi. Að því loknu verður ekið út á Reykjanes. Þar verður gengið frá Gunnuhver, meðfram strönd Reykjaness, og endað hjá Stolt Sea Farm, sem tilheyrir Auðlindagarðinum.
Akstur til, frá og milli áfangastaða tekur u.þ.b. 1,5 klst. Gangan tekur svipaðan tíma.
Allir velkomnir, lagt af stað með rútu frá Vesturbraut 12 í Reykjanesbæ kl19,00.
Fararstjórar verða Kristín Vala Matthíasdóttir framkvæmdastjóri Auðlindagarðs HS Orku og Marín Ósk
Hafnadóttir jarðefnafræðingur HS Orku
Kostnaður: kr 1000 frítt fyrir 12 ára og yngri
Upphafsstaður: Vesturbraut 12, Reykjanesbær
Hvenær: kl 19:00
Heilræði:
* Göngustafi.
* Drykkjarföng.
* Léttan bakpoka.
* Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (t.d. aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu).
* Létt nesti (t.d. samloku, ávexti, kex).
* Góðir gönguskór.
* Góða skapið.
Öryggisupplýsingar:
Félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes eru með í öllum gönguferðum sumarsins og taka þátt í að hafa yfirsýn yfir hópinn, sjá um skyndihjálparviðbrögð skyndihjálparviðbrögð, er ráðgefandi varðandi frávik í göngunni.
Ef neyðartilvik verður sér björgunarsveitarfólk alfarið um að stýra aðgerðum.
Nota 112 appið ef göngufólk er með það í símanum. Kveikja á því í upphafi göngu. Það gefur upp staðsetningu og auðveldar að ná í 112 ef þess gerist þörf.
Göngufólk meti eigið líkamlegt atgervi og komi ekki nema það treysti sér til.
Göngufólk er á eigin ábyrgð í gönguferðunum.
Leiðsögn fer fram á íslensku.
Aldrei skal yfirgefa hópinn. Við förum saman af stað og komum saman til baka.
Ef af einhverjum ástæðum einhver þarf að fara skal láta fararstjóra vita, ástand er metið og viðkomandi fær fylgd til baka eða allur hópurinn snýr við.