„Skítamórall“ á árshátíð FS
Árshátíð Fjölbrautaskóla Suðurnesja var haldin í Stapa í gærkvöldi þar sem hljómsveitin Skítamórall lék fyrir dansi. Var ekki annað að sjá en að prúðbúnir FS-ingar ásamt kennurum skemmtu sér vel á dansleiknum. Fleiri myndir frá árshátíðinni verða birtar í Tímariti Víkurfrétta, TVF, sem kemur út um miðjan apríl.
VF-Myndir/ Jón Björn