Bygg
Bygg

Mannlíf

Skipsstígurinn dregur að göngugarpa
Föstudagur 24. október 2008 kl. 15:06

Skipsstígurinn dregur að göngugarpa



Skipsstígurinn, gamla þjóðleiðin milli Njarðvíkur og Grindavíkur heillar marga göngugarpa. Leiðin er greiðfær og vinsælt er að enda gönguna í Bláa lóninu.
Hressir krakkar úr Borgarholtsskóla lögðu af stað í dag um kl.14:30 og ganga nú leiðina frá Fitjum í Bláa Lónið. Þau enda ferðina á slökun í lóninu. Ferðin er liður í íþróttaáfanga sem heitir Fjallganga. Markmið með áfanganum er að kynna útivist fyrir nemendum. Nemendur læra að meta landið til útivistar og hvernig á að búa sig í gönguferðir. Íris Björk Eysteinsdóttir og Halla Karen Kristjánsdóttir, kennarar  BHS fóru fyrir hópnum og að sögn Írisar hefur áfanginn gengið vel.
Mynd-VF/IngaSæm

Bílakjarninn
Bílakjarninn