Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Skessuhelgi í Reykjanesbæ
Laugardagur 13. nóvember 2010 kl. 10:26

Skessuhelgi í Reykjanesbæ

Skessudagar verða haldnir í Reykjanesbæ um helgina en þá verður kveikt á jólaskreytingum í bænum og fjölskyldum gefinn kostur á skemmtilegri samveru á hinum ýmsu stöðum í bænum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Það er Skessan í hellinum sem býður til hátíðarinnar en henni til aðstoðar er Fjóla tröllastelpa sem lítur við í hellinn hennar kl. 14:00 á laugardeginum en þar verður boðið upp á heitt súkkulaði.


Skessan tekur fagnandi á móti snuddum eða öðru jólaskrauti á tréð sitt í hellinum enda er hún að komast í jólaskap. Krakkar eru hvattir til þess að senda henni bréf eða mynd í póstkassann hennar í hellinum sem birt verða á vefnum skessan.is. Verðlaun verða veitt fyrir skemmtileg bréf og myndir við tendrun jólatrésins 4. desember nk.

Meðal dagskrárviðburða má nefna Listaleiðsögn fyrir börn kl. 15:00 á laugardeginum, Rauðhöfða í Duushúsum, dótadag í fjölskyldusundlauginni Vatnaveröld, Sæmund fróða og þjóðsögur í þrívídd á bókasafninu, andlitsmálun og sköpun skemmtilegra listverka í Svarta Pakkhúsinu og skemmtilega skessumessu í Keflavíkurkirkju.


Innileikjagarðurinn á Ásbrú verður opinn og fjölskyldan getur púttað saman hjá Púttklúbbinum.

Sjá dagskrá á vef skessunnar; skessan.is