Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Skessudagar um helgina
Þriðjudagur 9. nóvember 2010 kl. 08:53

Skessudagar um helgina

Skessudagar verða haldnir í Reykjanesbæ um helgina en þá verður kveikt á jólaskreytingum í bænum og fjölskyldum gefinn kostur á skemmtilegri samveru á hinum ýmsu stöðum í bænum.

Það er Skessan í hellinum sem býður til hátíðarinnar en henni til aðstoðar er Fjöla tröllastelpa sem lítur við í hellinn hennar kl. 14:00 á laugardeginum en þar verður boðið upp á heitt súkkulaði.
Skessan tekur fagnandi á móti snuddum eða öðru jólaskrauti á tréð sitt í hellinum enda er hún að komast í jólaskap. Krakkar eru hvattir til þess að senda henni bréf eða mynd í póstkassann hennar í hellinum sem birt verða á vefnum skessan.is. Verðlaun verða veitt fyrir skemmtileg bréf og myndir við tendrun jólatrésins 4. desember n.k.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Meðal dagskrárviðburða má nefna Listaleiðsögn fyrir börn kl. 15:00 á laugardeginum, Rauðhöfða í Duushúsum, dótadag í fjölskyldusundlauginni Vatnaveröld, Sæmund fróða og þjóðsögur í þrívídd á bókasafninu, andlitsmálun og sköpun skemmtilegra listverka í Svarta Pakkhúsinu og skemmtilega skessumessu í Keflavíkurkirkju.
Innileikjagarðurinn á Ásbrú verður opinn sem og Svartholið, línu- og hjólaskautagarður í 88 Húsinu og fjölskyldan getur púttað saman hjá Púttklúbbinum.

Sjá dagskrá á vef skessunnar; skessan.is