Bygg
Bygg

Mannlíf

Skerpukjöt og fallhlífarstökk  ekki á óskalistanum
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 30. maí 2020 kl. 08:14

Skerpukjöt og fallhlífarstökk ekki á óskalistanum

Anton Guðmundsson færi með gesti í Tyrkjabyrgin í Sundvörðuhrauni og Bláa lónið. Hann segir líka að það hefði verið gaman að taka kaffi með Halldóri Laxness og fara aðeins yfir stöðuna.

– Nafn:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Anton Guðmundsson.

– Fæðingardagur:

12. janúar 1993.

– Fæðingarstaður:

Keflavík.

– Fjölskylda:

Giftur Rebekku Ósk og eigum við saman tvíburadætur sem eru fjögurra ára.

– Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Matreiðslumaður.

– Aðaláhugamál:

Það eru tónlist, skot- og stangaveiði og fjallgöngur. Matreiðslan kemur alltaf sterk inn líka.

– Uppáhaldsvefsíða:

Blika.is

– Uppáhalds-app í símanum:

Spotify.

– Uppáhaldshlaðvarp:

Máltíð.

– Uppáhaldsmatur:

Lambakótilettur í raspi með öllu tilheyrandi!

– Versti matur:

Ætli það sé ekki skerpukjöt.

– Hvað er best á grillið?

Surf and Turf, nautalundir og humar. Steinliggur!

– Uppáhaldsdrykkur:

Morgunkaffið.

– Hvað óttastu?

Fallhlífarstökk er eitthvað sem heillar mig ekki.

– Mottó í lífinu:

Komdu fram við aðra eins og þú villt að aðrir komi fram við þig.

– Hvaða mann eða konu úr mannkynssögunni myndir þú vilja hitta:

Það hefði verið gaman að taka kaffi með Halldóri Laxness og fara aðeins yfir stöðuna.

– Hvaða bók lastu síðast?

Skáldið sem sólin kyssti. Ævisögu Guðmundar Böðvarssonar, skálds, sem var langafi minn. Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði bókina.

– Ertu að fylgjast með einhverjum þáttum í sjónvarpinu?

Nei, ekki þessa stundina.

– Uppáhaldssjónvarpsefni:

Kokkaflakk eru flottir þættir.

– Fylgistu með fréttum?

Já, aðalega á netinu og í útvarpi.

– Hvað sástu síðast í bíó?

Það var einhver barnamynd í sunnudagsbíó. Hún var frá Disney að mig minnir.

– Uppáhaldsíþróttamaður:

Á engan svoleiðis.

– Uppáhaldsíþróttafélag:

Grindavík!

– Ertu hjátrúarfullur?

Nei, samt smá.

– Hvaða tónlist kemur þér í gott skap?

Gott lag með Bubba Morthens gerir allt betra.

– Hvað tónlist fær þig til að skipta um útvarpsstöð?

Svona hipp popp rapp.

– Hvað hefur þú að atvinnu?

Starfa sem matreiðslumeistari á Réttinum í Keflavík.

– Hefur þú þurft að gera breytingar á starfi þínu vegna COVID-19?

Nei, ekki nema við höfum breytt og aðlagað verklag okkar að aðstæðum hverju sinni.

– Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til?

Þetta eru fordæmalausir tímar en ég er bjartsýnn.

– Er bjartsýni fyrir sumrinu?

Já, það leggst gríðalega vel í mig.

– Hvað á að gera í sumar?

Ferðast innanlands og njóta þess sem fallega landið okkar hefur upp á að bjóða.

– Hvert ferðu í sumarfrí?

Upp til sveita, inn til dala.

– Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim?

Tyrkjabyrgin í Sundvörðuhrauni og Bláa lónið.