HSS
HSS

Mannlíf

Skemmtilegt námskeið í RAFTÓNLIST
Föstudagur 13. júní 2025 kl. 06:20

Skemmtilegt námskeið í RAFTÓNLIST

Búðu til þitt eigið hljóðfæri!

Óhljóð! er raftónlistarsmiðja fyrir ungmenni í Suðurnesjabæ í samstarfi við Tónlistarskólann í Garði. Smiðjan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk sem er forvitið um hljóð og tónlist, og vill rannsaka óhefðbundnar leiðir til að búa til hljóð og hljóðgjafa.

Á námskeiðinu fá nemendur að búa til sín eigin rafhljóð með tækjum og íhlutum sem er auðvelt að setja saman. Áhersla er á sköpunargleði, föndur og skemmtilega nálgun á hljóðfærasmíðar og óhljóðagerð. Ekki er farið í tæknileg smáatriði. Þátttakendur fá að skapa hljóð og hljóðgjafa frá grunni og öðlast skilning út frá eigin tilraunum á því hvernig ólík hljóð verða til og hvernig má nota einfaldar raftengingar til að búa til hljóð.

Námskeiðið fer fram í tónlistarskólanum í Garði 16.-20. júní kl. 10:00-13:00 og afraksturinn verður sýndur í Byggðasafninu Garðskaga 21. júní kl. 15:00. Leiðbeinandi er Áki Ásgeirsson, tónskáld og raftónlistarmaður.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu en hámarksfjöldi er 12 nemendur og skráning fer fram á netfanginu [email protected].