Bygg
Bygg

Mannlíf

Skemmtilegast að upplifa spennuna í kringum jólin
Laugardagur 23. desember 2017 kl. 06:00

Skemmtilegast að upplifa spennuna í kringum jólin

Birgitta Bjargey Ásgeirsdóttir býr í Sandgerði og starfar á Keflavíkurflugvelli hjá Isavia. Hún er mikið jólabarn og ef hún fengi að ráða væri jólatréð komið upp í nóvember. Dóttir Birgittu er mjög spennt fyrir jólunum og Birgittu finnst það gera jólin svo skemmtileg.

Ertu mikið jólabarn?
Já, ég myndi segja að ég væri mikið jólabarn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Heldur þú fast í gamlar jólahefðir?
Ég held ekki fast í gamlar hefðir en mér finnst til dæmis allt of seint að setja upp tréð á Þorláksmessu.

Hvað er ómissandi á jólunum?
Hamborgarhryggur, jólaöl og konfekt er ómissandi og svo auðvitað að njóta með ástvinum.

Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina?
Skemmtilegast er að skreyta og upplifa spennuna sem fylgir öllu í kringum jólin og dóttir mín ýtir vel undir það.

Bakar þú smákökur fyrir jólin?
Baka bæði smákökur frá grunni og hendi líka í keyptar sortir.

Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar?
Ég vildi óska þess að ég væri búin að kaupa þær allar núna eða væri jafnvel byrjuð á því en ég mun fljótlega klára að versla þær.

Hvenær setur þú upp jólatréð?
Ef ég fengi að ráða þá væri það komið upp í nóvember! En ég og kærastinn minn gerðum samkomulag um að setja það upp í kringum annan í aðventu.

Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Dúkkuhús sem ég fékk þegar ég var held ég sjö ára.

Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Fyrir mér eru jólin komin þegar bjöllurnar hringja og við setjumst til borðs á aðfangadagskvöld.