Skemmtileg jólasýning Listdansskóla Reykjanesbæjar
Jólasýningar Listdansskóla Reykjanesbæjar, BRYN Ballett Akademíunnar, eru í dag í Andrews-leikhúsinu á Ásbrú í Reykjanesbæ. Fyrri sýningin hófst kl. 14 í dag og sú síðari hefst núna kl. 16.
Það er ljóst að Bryndís Einarsdóttir og hennar fólk í dansskólanum eru að vinna mikið og gott verk og sýningin nú áðan var flott og skemmtileg.
Fleiri myndir frá sýningunni í myndasafni Víkurfrétta á morgun, sunnudag.
Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson